Sagan
1980
Bragi Guðmundsson stofnað þann 10. maí.
1985
Viðtal við Braga á þessum tíma:
Ég stofnaði þetta fyrirtæki þann 10. maí, en þá var ég búinn að koma víða við. Ég fór á samning hjá Gottskálk Ólafssyni sem þá var og er reyndar starfandi tollvörður, en lærður trésmiður og vann í smíðum í aukavinnu. Það var í þá daga sem erfitt var að komast á samning í trésmíði, svo það var svona meira formsins vegna að hann tók mig á samning. Aldrei vann ég þó neitt hjá honum, þó hann væri minn meistari.
Meðan ég var að læra var ég að vinna hjá Tréverk, fyrirtæki sem þeir áttu Hermann Ólason, Viðar Jónsson og Erlendur Ragnarsson, frá þeim lá leiðin til Braga Pálssonar. Því næst fer ég að vinna hjá Þorvaldi Ólafssyni og er að mig minnir með hans fyrstu starfsmönnum. Hann var þá með verkstæði í bílskúr heima hjá sér og þar var nú ýmislegt framleitt þó plássið væri lítið.
Síðan fór maður eins og margir aðrir að vinna uppá flugvelli hjá Íslenskum Aðalverktökum, þar var ég þó stutt. Þá skeður það að ég flyst út í Garð, og fer fyrst að vinna sem trésmiður hjá Ísstöðinni og svo hjá húsabyggingu um tíma. Þegar hér var komið sá ég að þetta gekk ekki lengur svo ég stofnaði mitt eigið fyrirtæki. Aðallega hefur maður verið í útivinnu, uppslætti og svoleiðis, en líka í allskonar annarri trésmíðavinnu. Það má segja að það sé búið að vera yfirdrifið nóg að gera í þessi ár, það er nú frekar rólegt í augnablikinu, en ég er bjartsýnn á framtíðina. Það er ekki nema eðlilegt að eitthvað dragist saman, því þegar illa árar í útgerð og fiskvinnslu þá kemur það líka niður á okkur. Þetta er svo samtvinnað hér á svæðinu.
Í dag er ég með 6 menn í vinnu og er svo heppinn að þeir eru svo til allir búnir að vera með mér öll þessi ár sem fyrirtækið hefur starfað. Þetta er mjög góður hópur og samhentur.
Það má víða sjá þess merki, þegar ekið er um Garðinn að vel hefur verið unnið hjá Braga og félögum, þar má nefna einu fjölbýlishúsin á staðnum, verslunarhúsnæði, hafnarvogina og margt fleira. Nú síðast voru þeir að ljúka við að skila sundlaugarbyggingu Garðmanna af sér.
1988
Byggt og tekið í notkun nýtt trésmíðaverkstæði við Iðngarða 3 í Garði.
1990
Kynning á fyrirtækinu á þessum tíma:
Eftir að hafa unnið við almenna byggingavinnu, bæði við múrverk og smíðar hjá öðrum í um það bil 9 ár, hóf Bragi Guðmundsson eigin atvinnurekstur 10. maí 1980.
Fyrsta húsnæðið fyrir starfsemi fyrirtækisins var gamall fiskhúsbraggi sem tekinn var á leigu. Í byrjun var aðallega unnið við viðhalds- og nýbyggingarvinnu sem þróaðist smám saman í útboðsvinnu. Vinnusvæðið er aðallega hér í Garðinum en einnig víðar um Suðurnesin.
Meðal stærstu verkefna síðastliðinna ára má nefna verkamannabústaði í Sandgerði og Garði og 1. áfanga við sundlaugarbyggingu í Garði. Helstu verkefni sumarsins eru gatnagerð og gangstéttavinna við Garðbraut í Garði og frágangur við íbúða- og skrifstofuhúsnæði við Heiðartún 4 í Garði. Núverandi húsnæði fyrirtækisins er 500 m2 að stærð að Iðngörðum 3 í Garði. Aðallega hefur verið um útivinnu að ræða og er vélakostur fyrirtækisins miðaður við það.
Starfsmenn fyrirtækisins hafa flestir verið 8 talsins en eru 5 í dag. Flestir starfsmanna hafa unnið hjá Braga Guðmundssyni í mörg árs og verið traustur og góður kjarni.
1992
Bragi Guðmundsson ákveður að gera hlé á starfsemi fyrirtækisins og breyta til í lífinu, og fer að vinna sem yfirmaður áhaldahússins í Garði. Trésmíðaverkstæði og nær öll tæki og verkfæri voru þó áfram í eigu Braga og biðu notkunar.
1994
Bragi Guðmundsson hefur aftur starfsemi og er fyrsta verkefnið bygging verkstæðis fyrir Hitaveitu Suðurnesja í Svartsengi með Grindinni.
1995
Byggt íbúðarhús fyrir forseta Íslands á Bessastöðum með Grindinni.
2003
Kynning á fyrirtækinu frá þessum tíma:
Bragi Guðmundsson hefur starfað sem sjálfstæður verktaki frá árinu 1980. Raunar má segja að hann hefi byrjað ferilinn með námi fyrir um 30 árum, en starfaði þó fyrstu tvö árin í múrverki. Fyrirtækið hans veitir 8-12 manns atvinnu og nánast öll hans vinna í dag er framkvæmd í Garðinum.
Bragi hefur þjónustað fiskvinnslufyrirtækin bæði með nýbyggingum og viðhaldi svo og tekið þátt í útboðsverkum hjá hreppnum, auk þess sem hann hefur byggt sjálfur til sölu og skapað sér þannig atvinnu. Lætur nærri að hann hafi byggt um 70 íbúðir eða einbýlishús í sveitarfélaginu. Nú síðast eru það 20 íbúðir fyrir Búmenn í Kríulandi og Lóulandi. Þá byggði hann upp stórhýsi Fiskþurrkunar eftir að það sprakk hér um árið, einnig unnið mikið fyrir Nesfisk og raunar við flest öll fiskverkunarhúsin í Garðinum. Einnig hefur hann tekið að sér verk utan byggðarlagsins s.s. fyrir Flugleiðir í Reykjavík.
Bragi byggði ísturninn í Sandgerði og hús það sem Tros er með við Sandgerðishöfn. Fjóra verkamannabústaði við Hlíðargötu í Sandgerði og stórhýsi Vélsmiðjunnar Tikk við Sandgerðishöfn. Hann annaðist breytingar og lagfæringar við Fiskimjölsverksmiðjuna í Sandgerði. Þá hefur hann verið mikið í samstarfi við Grindina í Grindavík s.s. á Bessastöðum, við Hitaveituna í Svartsengi, Saltverksmiðjuna og fl.
Meðal annara stórverka Braga má nefna fyrri áfangann við Íþróttahúsið, plönin og allt viðkomandi Esso stöðinni í Garði, byggingu þá er hýsir Rafvinnustofu Sigurðar Ingvarssonar, Heilsugæsluna og Ársól í Garði. Tvo verkþætti við stækkun Gerðaskóla, allar innréttingar í nýbyggingu Hlévangs, breytinga á „Litlu Milljón“ í Ofnasmiðju Suðurnesja og viðbyggingu við Garðvang. Á þessu sést að Bragi hefur verið mjög afkastamikill verktaki.
2006
Bragi Guðmundsson ehf. stofnað og Sveinbjörn Bragason, sonur Braga verður meðeigandi.
2008
Steypt upp um 5000 m2 skrifstofuhúsnæði við Krossmóa í Reykjanesbæ með Grindinni og hafist handa við mjög umfangsmiklar breytingar og stækkun á Gerðaskóla. Stærsta einstaka framkvæmdin í sögu fyrirtækisins.
2011
Fyrirtækið byggir tæplega 3000 m2 fiskþurrkverksmiðju fyrir Háteig á Reykjanesi.
2020
Úrdráttur á kynningu á fyrirtækinu frá þessum tíma:
Fyrirtækið hefur byggð um 100 íbúðir og einbýlishús í Garðinum og ásamt fjölda fiskvinnsluhúsa í Garði og Sandgerði. Um þessar mundir er verið að byggja um 4000 m2 fiskþurrkverksmiðju fyrir Laugafisk á Reykjanesi og af nýlegum verkefnum tengdum sjávarútvegi má nefna hátækni fiskvinnslubyggingar fyrir Seacreast Iceland og Marmeti ásamt skrifstofuhúsnæði fyrir Nesfisk. Önnur stærri verkefni undanfarin ár eru meðal annars stækkun Gerðaskóla og stækkun íþróttamiðstöðvarinnar. Byggðasafnið á Garðskaga, bygging stjórnsýslu- og skrifstofuhúsnæðis sveitarfélagsins og leikskólinn Gefnarborg. Af öðrum verkefnum má nefna verslun Samkaupa í Sandgerði og turn Kaupfélagsins við Krossmóa í Reykjanesbæ.
Í lok árs var síðan hafist handa við enn eina stækkunina á Gerðaskóla. En þetta er í fjóra sinn sem fyrirtækið tekur að sér stækkun og endurbætur á grunnskólanum.
Hjá fyrirtækinu starfa um 20 manns, auk fjölda undirverktaka, en að jafnaði starfa um 10-15 manns hjá fyrirtækinu. Margir hverjir hafa unnið þar samfellt undafarin 20-30 ár og myndað mjög traustan og góðan kjarna starfsmanna.
2021
Fyrirtækið bætir við sig hönnun og hannar sínar fyrstu íbúðir við Báruklöpp í Suðurnesjabæ og jarðvinna hefst í lok árs. Við götuna byggir fyrirtækið raðhús- og parhús með samtals 24 íbúðum.
2022
Hafist handa við byggingu 1135 m2 leikskóla við Byggðarveg í Suðurnesjabæ.
2023
Starfsmannaferð farin til Manchester, heimasíða tekin í notkun og fyrstu raðhúsin afhent við Báruklöpp.
2024
Starfsmannaferð farin til London, leikskólinn Grænaborg afhentur í Suðurnesjabæ, fyrstu parhúsin afhent við Báruklöpp og framkvæmdir hefjast við fjögur einbýlishús við Brimklöpp.