Bragi Guðmundsson ehf. er frammúrskarandi fyrirtæki 2023 og er það í áttunda sinn sem fyrirtækið hlítur þessa viðurkenningu, og núna sjöunda árið í röð.
En hér má sjá listann: Creditinfo – Framúrskarandi fyrirtæki

Við erum stolt af þessum árangri og að uppfylla þau ströngu skilyrði að teljast frammúrskarandi fyrirtæki. Talan átta á sér einnig góða sögu innan fyrirtækisins. Átta er talan sem einn af starfsmönnum fyrirtækisins, Vilberg Þorvaldsson, var ávallt með á bakinu þegar hann lék knattspyrnu af miklum krafti með knattspyrnufélaginu Víði á gullaldarárum þess, og var ávallt góð fyrirmynd innan sem utan vallar. Það skilaði honum farsælum knattspyrnuferli með sínu uppeldisfélagi, ásamt því að verða leikjahæstur í efstu deild af leikmönnum Víðis með frænda sínum Grétari Einarssyni.