Við afhentum í dag fjögur vönduð parhús við Báruklöpp í Suðurnesjabæ, en þau eru 147,5 m2 að stærð með bílskúr og skiluðum við þeim alveg fullbúnum að innan sem utan, t.d. með heitum potti og fullfrágengnum sólpalli. Nýjir eigendur byrjuðu strax að flytja inn og sumir létu jafnvel renna strax í pottinn.
Við skiluðum af okkur í dag einu umfangsmesta verkefni sem við höfum tekið að okkur á allra seinustu árum, en það er leikskólinn Grænaborg í Suðurnesjabæ. Við byrjuðum á verkinu í júní 2022 eftir útboð og þegar við komum að verkinu þá var búið að gera jarðvinnuna fyrir bygginguna. Okkar hlutverk var að skila af okkur fullfrágengni byggingu án…
Bragi Guðmundsson ehf. er frammúrskarandi fyrirtæki 2023 og er það í áttunda sinn sem fyrirtækið hlítur þessa viðurkenningu, og núna sjöunda árið í röð. En hér má sjá listann: Creditinfo – Framúrskarandi fyrirtæki Við erum stolt af þessum árangri og að uppfylla þau ströngu skilyrði að teljast frammúrskarandi fyrirtæki. Talan átta á sér einnig góða sögu innan fyrirtækisins. Átta er…
Þau gleðilegu tíðindi urðu að fyrstu íbúarnir eru nú fluttir inn í raðhúsin sem við erum að byggja í Báruklöpp.Mjög ánægjulegt að sjá ljós komin í gluggana og mannlíf í götuna. Fyrstu 4 íbúðirnar eru tilbúnar og stutt í að næstu 4 íbúðir verði einnig tilbúnar til afhendingar.
Þann 1. desember 2021 hófum við framkvæmdir að 24 íbúðum í rað- og parhúsum við Báruklöpp í Garði til sölu á almennum markaði. Öll húsin eru steinsteypt og með steyptri þakplötu. Þökin eru tyrft með úthagatorfi og voru seinast byggð hús í Garðinum með torfþaki á 19. öld, en torfþök eru bæði umhverfisvæn og endast mjög vel. Fyrstu 4 íbúðirnar…
Við Rafnkelsstaðarveg í Suðurnesjabæ stóð húsið Vík sem var byggt árið 1945. Húsið var ferhyrnt steinsteypt tveggja hæða einbýlishús með valmaþaki og nokkuð óvanalegum gluggum. Oft var rauðum Mustang lagt á túninu fyrir framan húsið og síðar einkenndist húsið af mikilli niðurníðslu og var það að lokum rifið 2018. Við erum með þessa lóð í dag og á teikniborðinu spratt…