Við Rafnkelsstaðarveg í Suðurnesjabæ stóð húsið Vík sem var byggt árið 1945. Húsið var ferhyrnt steinsteypt tveggja hæða einbýlishús með valmaþaki og nokkuð óvanalegum gluggum. Oft var rauðum Mustang lagt á túninu fyrir framan húsið og síðar einkenndist húsið af mikilli niðurníðslu og var það að lokum rifið 2018.

Við erum með þessa lóð í dag og á teikniborðinu spratt upp hugmynd af frekar áberandi tveggja hæða parhúsi, sem sækir aðeins innblástur í þessa gömlu óvanalegu glugga, nýtir vel sjávarútsýnið og rauði Mustanginn mætti aftur í hlaðið. Tíminn á eftir að leiða í ljós hvort að þetta parhús verði byggt.