Við skiluðum af okkur í dag einu umfangsmesta verkefni sem við höfum tekið að okkur á allra seinustu árum, en það er leikskólinn Grænaborg í Suðurnesjabæ. Við byrjuðum á verkinu í júní 2022 eftir útboð og þegar við komum að verkinu þá var búið að gera jarðvinnuna fyrir bygginguna.

 

Okkar hlutverk var að skila af okkur fullfrágengni byggingu án lóðarfrágangs. Byggingin er glæsileg og mjög vönduð í alla staði, utan sem innan. 1135 m2, 6 deilir og rúmar 126 börn og 24 starfsmenn.

Myndir: Hilmar Bragi Bárðarson / Víkurfréttir.

Myndir: Hilmar Bragi Bárðarson / Víkurfréttir.