Þann 1. desember 2021 hófum við framkvæmdir að 24 íbúðum í rað- og parhúsum við Báruklöpp í Garði til sölu á almennum markaði. Öll húsin eru steinsteypt og með steyptri þakplötu. Þökin eru tyrft með úthagatorfi og voru seinast byggð hús í Garðinum með torfþaki á 19. öld, en torfþök eru bæði umhverfisvæn og endast mjög vel.
Fyrstu 4 íbúðirnar eru komnar á sölu við Báruklöpp, en um er að ræða mjög vönduð og fullfrágengin 105 m2 raðhús á frábærum stað.
Sjá nánar á Studlaberg.is